Bæði er mikil bílaumferð um þessi gatnamót á morgnana en einnig er mikið af ungum börnum á leið í skóla. Börnin ganga yfir þessi gatnamót bæði í átt að Álfhólsskóla Digranes og Álfhólsskóla Hjalla en það myndast oft hættulegar aðstæður þarna sem umferðarljós myndu leysa. Þannig myndi líka hættan á slysum minnka.
Ég styð þessa hugmynd heils hugar. Það er full þörf á umferðarljósum á þessum stað.
Bæði er mikil bílaumferð um þessi gatnamót á morgnana en einnig er mikið af ungum börnum á leið í skóla. Börnin ganga yfir þessi gatnamót bæði í átt að Álfhólsskóla Digranes og Álfhólsskóla Hjalla en það myndast oft hættulegar aðstæður þarna sem umferðarljós myndu leysa. Þannig myndi líka hættan á slysum minnka.
Alveg óþarfi að bæta ljósum við. Núverandi fyrirkomulag virkar fullkomlega.
Þessi hugmynd komst ekki áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Okkar Kópavogur. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndaferlinu og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á heimasíðu verkefnisins www.kopavogur.is/okkarkopavogur
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation