Legg til að komið verði upp salernisaðstöðu fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur úti á Kársnesi t.d. í næsta nágrenni við höfnina. Þarna er umtalsverð umferð göngu- og hjólafólks allt árið en hvergi kostur á að komast á salerni frá og með bensínstöðinni Nesti í Fossvogi þar til komið er að íþróttamannvirkjunum í Kópavogsdalnum.
Sjá lýsingu á fyrri síðu.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Okkar Kópavogur og fer því ekki í kosningu. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndaferlinu og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins Okkar Kópavogur er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á heimasíðu verkefnisins www.kopavogur.is/okkarkopavogur
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation