Útivistar- og áningarstaður fyrir göngufólk og eldri borgara:) Grasflöt, lágvaxnir runnar sem mynda skjól, skjólveggur (tyrfður) og bekkir og borð.
Margt eldra fólk býr í næsta nágrenni og fer oft í gönguferðir og hittist og þá hefur þetta borið á góma. Mundi gera allt svæðið vinalegra og "mýkra" og gott og gaman að setjast niður og spjalla.
Þú tókst þátt í hugmyndaferlinu í lýðræðisverkefninu Okkar Kópavogur síðastliðið haust. Þessi hugmynd hefur komist áfram í kosningaferlið í Okkar Kópavogur en getur mögulega hafa tekið einhverjum breytingum. Hugmyndin er í kosningu á Kársnesi. Rafrænar kosningar eru hafnar og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á heimasíðu verkefnisins www.kopavogur.is/okkarkopavogur
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation