Mikill fjöldi leikskóla- og grunnskólakennara starfar ekki við kennslu og kennaranemum hefur fækkað svo mikið á undanförnum árum að kennaraskortur er yfirvofandi. Aðeins þriðjungur þeirra sem vinna á leikskólum eru menntaðir kennarar. - Kjarninn.is
Styttum kennaranámið!
Nýútkomin skýrsla frá Ríkisendurskoðun um kostnað og skilvirkni kennaramenntunar á Íslandi leiðir í ljós fyrirsjáanlegan kennaraskort á landinu. Í skýrslunni kemur fram að skráðum nemendum við kennaradeildir Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri hafi fækkað um 35% frá árinu 2009 og að 51% færri nýnemar voru skráðir í deildirnar haustið 2016 samanborið við haustið 2009. - Mbl.is
Það þarf að gera vinnuumhverfið í grunnskólunum þannig að kennarar VILJI vinna þar. Álagið er mjög mikið og auknar kröfur úr öllum áttum verða til til þess að kennarar brenna út og leita fremur í önnur störf. Kennslan sjálf og menntun barnanna okkar er löngu orðið aukaatriði en skráningar og skriffinska, fundaseta, oft fundanna vegna (!) og samskipti við foreldra, þ.m.t. útgáfa fréttabréfs með myndum frá starfi vikunnar sem kennarar búa til og senda heim oft vikulega, tekur upp tíma og orku.
Menntun er mikilvæg. Góður kennari er ómetanlegur. Laun og starfsumhverfi kennara þarf að vera með þeim hætti að fólk fáist til að vinna í leik- og grunnskólum.
Til að fá kennara til baka inn í skólana væri hægt að bjóða þeim að fella niður námslánin. Kennari skuldbindur sig ákveðinn tíma í skólakerfinu og fær á móti niðurfellingu skulda.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation