Skemmtileg viðbót í dalinn fyrir krakka
Mæli með að setja svona braut þar sem Kópavogsdalurinn er vel til þess fallinn að nýtast í slíkt. Það eru næg leiksvæði fyrir yngri börn í Smárahverfi en sárvantar fyrir börn á aldrinum 6-16 ára. Þetta væri tilvalið, sérstakleg fyrir þann hóp.
Hægt að koma fyrir braut á svæðinu norðanmegin við brennusvæðið í Kópavogsdal. Samskonar braut er í Garðabæ og hefur vakið mikla lukku.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation