Taka 360° ljósmyndir af helstu útivistasvæðum, leikvöllum, stígum og opnum svæðum í hverfinu bæði til að setja á Google Maps/Streetview og kortasjá. Þá er auðveldara fyrir alla að skoða sig um áður en ákveðið hvert á að fara í útivist, sjá fyrirfram hvaða aðstaða er í boði, hvaða leiktæki er hægt að komast í sem hentar mismunandi aldri og hvernig er umhorfs. Væri til dæmis frábært af garðinum í Fífuhvammi, rólóum, leikskólum og skólalóðum.
Gerir græn svæði og leikvelli aðgengilegri fyrir íbúa, starfsmenn bæjarins og aðra gesti sem eru að skipuleggja útivist eða langar að skoða sig um í hverfinu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation